• Twistshake merki

GREIÐSLUR OG VERÐ

Allar greiðslur fara í gegnum öruggt vefsvæði Valitor, netgíró, pei eða millifærslu.

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Eftir greiðslu á pöntun fær kaupandi staðfestingu í tölvupósti.
Ath - Tölvupóstur gæti hafa endað í rusl hólfinu.

Allar pantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag.

AFHENDING Á VÖRU

Pantanir eru sendar með TVG Xpress og gilda almennir afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar TVG Xpress um afhendingu vörunnar.

Sendingartími er 0-2 virkir dagar að jafnaði.
Samdægurs afhending á höfuðborgarsvæðinu er aðeins á virkum dögum ef pantað er fyrir kl. 12:00.
Frí heimsending um allt land ef þú verslar fyrir 12.000 kr eða meira.

Twistshake.is tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir séu með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur. Í þeim tilfellum þar sem merkinga er ábótavant mun TVG Xpress senda pöntunina til baka og lendir tilfallandi kostnaður á kaupanda.

Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Twistshake.is til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

SKILAFRESTUR OG ENDURGREIÐSLUR

Skilafrestur pantana er 14 dagar frá kaupdegi og skal ósk um skil berast með tölvupósti á twistshake@twistshake.is.

Einungis er hægt að skila vörum sem eru ónotaðar og/eða enn í upprunalegum umbúðum.

Endurgreiðsla fer fram þegar varan er komin aftur í hendur seljanda.

Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Ef við á, þá þarf viðskiptavinurinn að greiða fyrir flutnings- og póstburðargjöld þegar verið er að skila eða skipta vöru.

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.

Gölluð vara

Twistshake.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða
hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir
símleiðis.

VARNARÞING

Viðskipti við Twistshake.is er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.

PERSÓNUUPLÝSINGAR OG TRÚNAÐUR

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Twisthsake.is

Twisthsake.is er í eigu og er rekið af fyrirtækinu Thorsson ehf.